Réttu handtökin við að gefa bílum start

Hjörtur Gunnar Jóhannesson hjá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, kennir réttu handtökin við að gefa bílum start eins og fram kom í viðtali við hann í Fréttablaðinu um helgina.

Nýir og nýlegir bílar eru með ýmsum flóknum tölvu og rafeindabúnaði sem getur verið viðkvæmur fyrir snöggum breytingum á spennu í rafkerfinu. Þess vegna er það mikilvægt, þegar gefa á bíl með tóman rafgeymi startstraum með startköplum milli bíla, að tengja kaplana milli þeirra í réttri röð,“ segir Hjörtur og gefur leiðbeiningar um hvernig það megi gefa start þannig að ekki verði hætta á skemmdum sem kostað getur stórfé að lagfæra. Leiðbeiningarnar má sjá hér fyrir neðan.

1. Þegar startkaplar eru tengdir milli bíla og annar bíllinn er með fullhlaðinn rafgeymi en hinn með tóman, neistar á milli þegar 4. og síðasta kapalklemman er tengd. Á því augnabliki sem neistinn myndast getur orðið allt að 3.000 volta yfirspenna.

2. Áður en startkaplarnir eru tengdir er í öryggisskyni skynsamlegt að fjarlægja lyklana úr kveikilásum beggja bílanna.

 3. Þegar startkaplarnir eru tengdir skal síðasta kapalklemman látin bíta sig fasta við ómálaðan málm.

4. Þegar startkaplarnir eru tengdir við báða bílana skal setja hjálparbílinn (þann sem gefur strauminn) í gang og síðan skal starta straumlausa bílnum.

5. Þegar bíllinn með tóma geyminum er kominn í gang skulu startkaplarnir vera tengdir saman um stund. Þetta skal gera til að forðast að neisti og yfirspenna hlaupi út í „galopið“ rafkerfið eftir að búið er að gefa straum og skemmi eða eyðileggi rafeindabúnað bílanna. FÍB mælir með: Notið einvörðungu vandaða startkapla.

FÍB mælir með: Notið einvörðungu vandaða startkapla. Myndbandið má sjá hér.