Reykjavíkurborg og OR styrkja uppsetningu hleðslubúnaðar

Reykjavíkurborg og Orkuveita Reykjavíkur hafa styrkt 31 húsfélag við uppsetningu hleðslubúnaðar fyrir rafbíla.Samtals hafa 31 húsfélag í Reykjavík fengið samþykktan styrk til uppsetningar hleðslubúnaðar fyrir rafbíla. Þar undir er 1.141 íbúð sem fær aðgang að hleðslubúnaði en samtals nemur styrkupphæðin 42,7 milljónum en fyrsta styrk var úthlutað í september 2019 eins og fram kemur í tilkynningu.

„Það er náttúrulega mjög þægilegt að geta rennt í hlað og stungið beint í samband í stað þess að vera með snúru inn um glugga íbúðar á annarri hæð í blokk,“ segir Pétur Karlsson íbúi við Eskihlíð 10a í Reykjavík.Pétur og aðrir íbúar Eskihlíðar 10 settu upp tvær hleðslustöðvar með samtals fjórum tenglum nú í september og hlutu styrk frá Reykjavíkurborg og OR til verksins.

Pétur segist alfarið nota hleðslustöðina á planinu við Eskihlíð 10 og er stoltur meðlimur rafbílafjölskyldunnar sem fer ört stækkandi hér á landi.

Það var í apríl 2019 sem Reykjavíkurborg, OR og Veitur og undirrituðu samning um uppbyggingu innviða til hleðslu á rafbílum í Reykjavík. Eitt af verkefnunum í samkomulaginu var stofnun sjóðsins sem ætlað er að styrkja húsfélög fjölbýlishúsa sem hafa sett upp hleðslubúnað fyrir rafbíla á sínum lóðum.

Samningurinn er til þriggja ára og kveður á um að Reykjavíkurborg leggi til 20 milljónir á ári og OR 20 milljónir. Nú er fyrsta árinu að ljúka en styrkurinn er eingöngu veittur til fjöleignarhúsa með 5 íbúðum eða fleiri samkvæmt skráningum fasteigna hjá Þjóðskrá Íslands. 

Hámarks styrkupphæð er 1.500.000 kr. en þó aldrei meira en sem nemur 67% af heildarkostnaði verksins með virðisaukaskatti sem greiddur er í samræmi við framlagða reikninga.