Reykjavíkurborg skylt að bjóða út að nýju uppsetningu hleðslustöðva

Kærunefnd útboðsmála hefur lagt fjögurra milljóna króna stjórnvaldssekt á Reykjavíkurborg og gert henni að bjóða út að nýju uppsetningu og rekstur hleðslustöðva fyrir rafbíla. Þá telur kærunefndin að Reykjavíkurborg sé skaðabótaskyld gagnvart Ísorku og er auk þess gert að greiða fyrirtækinu allan málskostnað, tvær milljónir króna. Þetta kemur fram á ruv.is

Reykjavíkurborg bauð út uppsetningu og rekstur hleðslustöðva fyrir rafbíla í Reykjavík. Sá sem hreppti hnossið átti að leggja til bílastæði á ákveðnum stöðum og mátti fyrir vikið rukka þá sem notuðu hleðslustöðvarnar til að hlaða rafbíla sína. Alls átti viðkomandi að fá aðgang að 27 staðsetningum þar sem hægt yrði að setja upp 72 hleðslustöðvar. Samningurinn með öllum framkvæmdum var metinn á rúman hálfan milljarð.

Orka náttúrunnar varð fyrir valinu. Ísorka kærði útboðið og taldi það í skötulíki. Til að mynda hefði lausn Orku náttúrunnar ekki verið í samræmi við reglugerð auk þess sem Samkeppniseftirlitið hefði hafið rannsókn á starfsemi fyrirtækisins á markaði fyrir hleðslur, hleðslustöðvar og rafmagn vegna brota á samkeppnislögum. Rannsóknina má rekja til kvörtunar Ísorku.

Þá benti Ísorka á að Orka náttúrunnar væri dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur sem væri í meirihlutaeigu Reykjavíkurborgar. Það hefði því átt að útiloka fyrirtækið frá útboðinu enda hefðu starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur lesið yfir útboðsgögn. Ísorka taldi líka að borgin væri að gera sérleyfissamning og því hefði átt að birta tilkynningu um útboðið á evrópska efnahagssvæðinu.

Kærunefndin tók undir það síðastnefnda og taldi að borgin hefði átt að birta tilkynningu um fyrirhugaða veitingu sérleyfis á EES-svæðinu. Borgin hefði ekki gert það og því væri óhjákvæmilegt að fella samninginn við Orku náttúrunnar  úr gildi. 

Í úrskurðarorðum segir að samningur varnaraðila, Reykjavíkurborgar og Orku náttúrunnar ohf. frá 2. október 2020, um uppsetningu og rekstur hleðslustöðva fyrir rafbíla í Reykjavík, skal vera óvirkur frá uppkvaðningu úrskurðar þessa.

Lagt er fyrir varnaraðila að bjóða út að nýju uppsetningu og rekstur hleðslustöða fyrir rafbíla í Reykjavík. Varnaraðili, Reykjavíkurborg, greiði stjórnvaldssekt að fjárhæð 4.000.0000 krónur er renni í ríkissjóð.

Varnaraðili, Reykjavíkurborg, er skaðabótaskyldur gagnvart kæranda vegna kostnaðar kæranda af því að undirbúa og taka þátt í útboði nr. 14923 auðkennt „Uppsetning og rekstur hleðslustöðva fyrir rafbíla í Reykjavík“.

Varnaraðili greiði kæranda 2.000.000 krónur í málskostnað. Öðrum kröfum kæranda er hafnað.