Samdrátturinn í umferð á Hringveginum slær öll met

Samdrátturinn í umferð á Hringvegi í apríl slær öll met. Umferðin í mánuðinum drógst saman um nærri 35 prósent sem í sögulegu samhengi er gríðarlega mikill samdráttur. Nú hefur umferðin dregist saman um nærri 18 prósent á Hringveginum frá áramótum sem er líka met. Mest hefur umferðin dregist saman á Mýrdalssandi eða um tæp 80 prósent og verður að leiða lýkur að því að þar muni mestu um ferðamennina af því fram kemur í tölum frá Vegagerðinni.

Milli mánaða 2019 og 2020

Segja má að umferðin í nýliðnum mánuði, um 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringvegi, hafi dregist það mikið saman miðað við sama mánuð á síðasta ári að kalla mætti að hún hafi hrunið. Umferðin drógst saman um tæp 35% í apríl mánuði miðað við sama mánuð á síðasta ári.  Svona miklar samdráttartölur hafa ekki sést áður, ekki síðan þessi samantekt hófst.  Til að gefa hugmynd um stærðargráðuna þá er þessi samdráttur sex sinnum meiri en í efnahagskreppunni fyrir 10 árum síðan.

.Mest dregst umferðin saman á Norðurlandi eða um tæplega 60% en minnst um teljara á og í grennd við höfuðborgarsvæðið eða um 23%.  Fyrir einstaka staði þá er samdrátturinn mestur um Hringveginn á Mýrdalssandi eða samdráttur upp á tæp 80% þ.a.l. var umferðin um Mýrdalssand í apríl rétt um 1/5 af því sem hún var fyrir ári síðan.  Minnst dregst umferðin saman um mælisnið Vegagerðarinnar við Úlfarsfell eða um tæp 20%, sem hefði vel dugað í sögu til næsta bæjar ef þetta hefði verið mesti samdrátturinn. 


Frá áramótum milli áranna 2019 og 2020

Nú hefur umferð dregist saman um 17,5% frá áramótum sem er rúmlega tvöfalt meira en áður hefur nokkurn tímann verið mælt miðað við árstíma, þ.e.a.s. síðan þessi samantekt hófst fyrir um einum og hálfum áratug. 

Mest hefur umferð dregist saman um Norðurland eða um tæp 34% en minnst um mælisnið á og í grennd við höfuðborgarsvæðið eða um tæp 11%.

Eins og geta má nærri um hefur umferð allra vikudaga dregist mikið saman en hlutfallslega mest á sunnudögum eða um tæp 27% en minnst á þriðjudögum eða um rúmlega 13%.

Mest hefur verið ekið á föstudögum en minnst á sunnudögum, sem er breyting frá fyrra ári þar sem þriðjudagar eru gjarnan lægstir í umferðinni um Hringveginn.