Samkomutakmarkanir og minni umferð

Umferð á höfuborgarsvæðinu í síðustu viku var 21 prósenti minni en í sömu viku fyrir ári síðan og átta prósentum minni en í vikunni þar á undan. Í umfjöllun Vegagerðarinnar segir að líklegt má telja að auknar samkomutakmarkanir og hvatning sóttvarnaryfirvalda til fólks um að vera sem minnst á ferð að óþörfu skili sér í þessum samdrætti í umferð. 

Í fyrstu bylgju faraldurins birti Vegagerðin umferðartölur vikulega frá höfuðborgarsvæðinu til að meta áhrif kórónaveirunnar á umferðina og tekur það nú upp aftur í þessari bylgju farsóttarinnar.

Nýliðin vika, eða vika 41, er fyrsta heila vikan með auknum samkomutakmörkunum vegna Covid-19 faraldursins, reyndist umferðin í þremur lykilmælisniðum á höfuðborgarsvæðinu tæplega 21% minni en hún var í sömu viku á síðasta ári. En í vikunni á undan núna í ár, eða viku 40, varð hins vegar tæplega 8% samdráttur.

Mest dróst umferðin saman í sniði á Hafnarfjarðarvegi eða um tæp 30% en minnst í sniði á Reykjanesbraut eða um tæp 17%.

Eins og sést á línuritinu sem fylgir, sem sýnir hlutfallslegan mun á milli vikna, hefur verið samdráttur í öllum vikum síðan í viku 24 og umferð hefur dregist saman í langflestum vikum ársins, það er aðeins í vikum 4-6, 8 og 24 sem umferðin hefur aukist í ár.