Sátt um að Reykjanesbraut liggi áfram við álver

Eftir viðræður fulltrúa Hafnarfjarðarbæjar og álvers Rio Tinto í Starumsvík í gær var ákveðið, að tvöföld Reykjanesbraut frá gatnamótum að Krýsuvík að Hvassahrauni verði í núverandi vegstæði, í stað þess að færa hana eins og gert er ráð fyrir í aðalskipulagi bæjarins.

Bæajarstjóri Hafnarfjarðar, Rós Guðbjartsdóttir, greinir frá þessu í færslu á Facebook-síðu sinni. Stór hluti Reykjanesbrautar er með tvöföldum akreinum í báðar áttir, ef frá er talinn fyrrnefndur kafli sem og Reykjanesbraut frá Fitjum í Njarðvík að flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli. Alvarleg bílslys hafa orðið á þessum köflum, nú síðast banaslys 12. janúar þegar tveir bílar rákust saman.

Samkvæmt aðalskipulagi átti að færa Reykjanesbrautina fjær álverinu og voru þær áætlanir arfleifð frá þeim tíma þegar til stóð að stækka álverið. Íbúar höfnuðu þeirri stækkun í kosningu árið 2007. Vinna við nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar fer að hefjast.

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar segir í færslunni að samgönguráðherra hafi lýst yfir vilja til að ljúka tvöföldun brautarinnar mun fyrr en ráðgert var náist samkomulag um þessa leið, sem bæði sé mun ódýrari og fljótlegri en ef Reykjanesbrautin yrði færð.

„Á fundi skipulags- og byggingarráðs í morgun var ákveðið að hefja vinnu við breytingar á aðalskipulagi vegna þessa. Mjög stórt skref í að ljúka tvöföldun!,“ segir Rósa í færslunni. 

Samgönguráðherra og Vegagerðin hafa lagt áherslu á, í samræmi við ný gögn, að brautin verði tvöfölduð á núverandi vegstað. Til að svo megi verða þarf að gera breytingar á aðalskipulagi Hafnarfjarðar og mun bærinn vinna þær í nánu samstarfi við fyrirtækið.