Seat á ystu brún

Örlög spænska bílamerkisins Seat munu ráðast á þessu ári. Seat er eina vörumerkið í Volkswagen samsteypunni sem ekki skilar hagnaði. Ef ekki tekst að snúa tapinu í hagnað á þessu ári verður Seat merkið lagt niður. Reksturinn gekk reyndar betur á sl. ári en oftast áður, en bara ekki nóg að mati stjórnar VW.  

Afkoma Seat skánaði á síðasta ári og reksturinn var ekki langt frá því að vera í jafnvægi undir stjórn nýs forstjóra og 650 milljón evra fjárfestingar í framleiðslu, niðurskurði og hagræðingu í rekstri og markaðsátaki.  Útlfutningur á Seat bílum jókst og salan jókst um 22 prósent á Þýskalandsmarkaði og um 16,6 prósent í Mexíkó svo dæmi séu nefnd. Seat er nú seldur í 77 löndum alls. En þótt staðan hafi batnað á Þýskalandsmarkaði þá dróst Seat salan saman í Evrópu sem heild um 16 prósent. Þar munar mjög um bágt efnahagsástand á helstu mörkuðum Seat í S. Evrópu (Spáni, Ítalíu og Grikklandi o.fl.).