Sjöfalt meiri samdráttur en áður hefur mælst

Umferðin á Hringvegi í september dróst saman um heil 16,3 prósent sem er sjöfalt meiri samdráttur en áður hefur mælst. Þannig að um gríðalega mikinn samdrátt er að ræða. Þetta er þess sem kemur meðal annars fram í tölum frá Vegagerðinni

Hér stýrir kórónufaraldurinn för og fækkun ferðamanna enda hefur umferð á ferðamannaleiðum dregist saman um t.d. 75 prósent á Hringvegi í Lóni. Þar munar væntanlega mestu um ferðamennina. Útlit er fyrir 11-12 prósenta samdrátt í ár, sem hefur ekki áður mælst svo mikill. 

Gríðarlegur samdráttur varð í umferð í nýliðnum septembermánuði borið saman við sama mánuð á síðasta ári, um 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringvegi, eða 16,3% samdráttur.  Þetta er langstærsti samdráttur, milli septembermánaða, í umræddum mælisniðum. Áður hafði mest mælst 2,6% samdráttur milli áranna 2007 og 2008.  Þetta er því tæplega sjöfalt meiri samdráttur en áður hefur mælst.  Leita þarf aftur til ársins 2015 til að finna minni umferð í september á Hringvegi.

Samdráttur varð í öllum landssvæðum en mest dróst umferð saman um mælisnið á Austurlandi eða um tæp 49% en minnst við höfuðborgarsvæðið eða tæp 4%.

Af einstaka mælisniðum, er það að frétta að 75% samdráttur varð um Hringveg í Lóni en minnst dróst umferð saman á Hringvegi við Úlfarsfell eða um rétt rúmlega 1%.

Nú hefur umferðin, í umræddum mælisniðum, dregist saman um 12,5%, frá áramótum, miðað við sama tímabil á síðasta ári.  Hér er sömuleiðis um nýtt met í samdrætti að ræða miðað við árstíma þar sem áður hafði mest mælst 5,2% samdráttur á sama tíma milli áranna 2010 og 2011.  Þessi samdráttur nú er meiri en tvöfalt meiri en áður hefur sést. Mest hefur umferðin dregist saman á Austurlandi eða um 28,5% en minnst við höfuðborgarsvæðið eða um 5,6%.

Umferð hefur dregist saman í öllum vikudögum en hlutfallslega mest á sunnudögum eða um 17% en minnst á þriðjudögum eða um 11,5%.  Mest er ekið á föstudögum og minnst á mánudögum - það sem af er ári.