Skora á stjórnvöld að standa við sínar skyldur og undirriti samkomulagið

Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, skorar á íslensk stjórnvöld að innleiða evrópu reglugerð um takmarkanir á mengun frá bílum. Innleiðingin hefur dregist úr hófi fram en hún gæti haft það í för með sér að framleiðendur selji ekki raf- eða hreinorkubíla hingað til lands og jafnvel ekki heldur til Noregs.

Í fréttatíma á RÚV í gærkvöldi kom fram í máli Runólfs Ólafssonar, framkvæmdastjóra FÍB, að Evrópusambandið hafi samþykkt harðari reglur og auknar kröfur á bílaframleiðendur varðandi útblástur bíla.

Fram kom að í ár megi meðal framleiðsla hvers bílaframleiðanda ekki menga meira en sem nemur 95 gr. á kílómetra af koltvísýringi. Háar sektir liggi við brotum sem þessum og hefðu framleiðendur því keppst við að fara yfir í framleiðslu á hreinorku bílum. EFTA-ríkin, Ísland, Noregur og Liechtenstein, sem eru hluti af EES samningnum þurfa öll að samþykkja það sem fer inn í samninginn.

,,Eftir upplýsingum sem við höfum frá Noregi hafa aðilar þar áhyggjur að því að einverra hluta vegna hafa Íslendingar dregið lappirnar með að samþykkja þetta regluverk frá Evrópu sem lítur að því að draga úr útlosun frá ökutækjum. Það sé í raun þvert á samþykktir stjórnvalda í átaki í þeim efnum,” sagði Runólfur Ólafsson í samtali á RÚV.

Runólfur sagði ennfremur að framleiðendur sæju sér ekki hag í því að flytja hingað til lands raf- eða hreina raforkubíla því þeir telji ekki með í kvóta þeirra og sama gæti gilt fyrir Noreg. Runólfur segir að samkvæmt upplýsingum hafi málið beðið afgreiðslu hjá Alþingi frá því í október á síðasta ári.

,,Við skorum á stjórnvöld að standa við sínar skyldur og undirrita þetta samkomulag til að tryggja það að hér verði áfram nægt framboð á raf- og hreinorkubílum á markaðnum,” sagði Runólfur Ólafsson.

FÍB óskaði eftir viðbrögðum frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu vegna innleiðingar evrópsku reglugerðarinnar en svör höfðu ekki borist við vinnslu fréttarinnar.