Skref í átt að auknu umferðaröryggi

Vesturlandsvegur (1) í gegnum Mosfellsbæ var vígður formlega í gær eftir endurbætur og breikkun. Með framkvæmdinni stóreykst umferðaröryggi í gegnum bæinn. Vígðir voru tveir áfangar, tæpir 2 kílómetrar frá Skarhólabraut að Reykjavegi, en framkvæmdirnar eru hluti  af verkefnum Samgöngusáttmála ríkisins og sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem gerður var í september 2019.

Verkið gekk mjög vel. Framkvæmdir við fyrsta áfanga hófust í lok maí 2020 og lauk í desember það sama ár. Seinni áfangi fór af stað í febrúar á þessu ári og lauk formlega við opnunina þann 8. desember.

Í fyrri áfanga, sem náði frá Skarhólabraut að Langatanga, var akreinum fjölgað úr þremur í fjórar og þannig komið í veg fyrir umferðarteppur sem oft mynduðust við Lágafellskirkju. Í seinni áfanganum, sem náði frá Langatanga að Reykjavegi, voru fjórar akreinar fyrir en þörf á endurbyggingu vegarins. Stærsta breytingin er sú að akstursstefnur eru nú aðskildar með vegriði á allri leiðinni sem stóreykur umferðaröryggi á veginum.