Slökkt á yfir 150 hleðslustöðvum fyrir rafbíla vítt og breitt um borgina

Á morgun verður slökkt á yfir 150 hleðslustöðvum fyrir rafbíla vítt og breitt um borgina.Haft er eftir borgarstjóra að ekkert sé annað í stöðunni því annars sæti Reykjavíkurborg dagsektum. Ekki var rétt staðið að útboðinu og verður verkefnið að öllum líkindum boðið út að nýju.

Fyrir skemmstu lagði Kærunefnd útboðsmála fjögurra milljóna króna stjórnvaldssekt á Reykjavíkurborg og gert henni að bjóða út að nýju uppsetningu og rekstur hleðslustöðva fyrir rafbíla. Þá telur kærunefndin að Reykjavíkurborg sé skaðabótaskyld gagnvart Ísorku og er auk þess gert að greiða fyrirtækinu allan málskostnað, tvær milljónir króna. Þetta kemur fram á ruv.is

Reykjavíkurborg bauð út uppsetningu og rekstur hleðslustöðva fyrir rafbíla í Reykjavík. Sá sem hreppti hnossið átti að leggja til bílastæði á ákveðnum stöðum og mátti fyrir vikið rukka þá sem notuðu hleðslustöðvarnar til að hlaða rafbíla sína. Alls átti viðkomandi að fá aðgang að 27 staðsetningum þar sem hægt yrði að setja upp 72 hleðslustöðvar. Samningurinn með öllum framkvæmdum var metinn á rúman hálfan milljarð.

Orka náttúrunnar varð fyrir valinu. Ísorka kærði útboðið og taldi það í skötulíki. Til að mynda hefði lausn Orku náttúrunnar ekki verið í samræmi við reglugerð auk þess sem Samkeppniseftirlitið hefði hafið rannsókn á starfsemi fyrirtækisins á markaði fyrir hleðslur, hleðslustöðvar og rafmagn vegna brota á samkeppnislögum. Rannsóknina má rekja til kvörtunar Ísorku.

Þá benti Ísorka á að Orka náttúrunnar væri dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur sem væri í meirihlutaeigu Reykjavíkurborgar. Það hefði því átt að útiloka fyrirtækið frá útboðinu enda hefðu starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur lesið yfir útboðsgögn. Ísorka taldi líka að borgin væri að gera sérleyfissamning og því hefði átt að birta tilkynningu um útboðið á evrópska efnahagssvæðinu.

Kærunefndin tók undir það síðastnefnda og taldi að borgin hefði átt að birta tilkynningu um fyrirhugaða veitingu sérleyfis á EES-svæðinu. Borgin hefði ekki gert það og því væri óhjákvæmilegt að fella samninginn við Orku náttúrunnar  úr gildi. 

Fram kemur í samtali við borgarstjóra á ruv.is að unnið verði að lausn málsins hið fyrsta. Borginni sé nauðugur einn kostur að slökkva á hleðslustöðvunum -annars gæti hún átt dagssektir yfir höfði sér. Borgin hefur farið fram á frestun réttaráhrifa úrskurðarins. Nefndin hefur gefið Ísorku og ON frest til 30. júní til að skila umsögnum um málið.