Sólarrafhlöður til að auka eldsneytis- og orkunýtingu

Tækninni fleytir fram á ýmsum sviðum og þar er bílagreininni ekki undan skilin. Hyundai Motor Group hefur verið að koma fram með ýmsar nýjungar og nú hefur fyrirtækið kynnt áætlun um að búa þök og jafnvel vélarhlífar tiltekinna bílgerða fyrirtækisins með sólarrafhlöðum til að auka eldsneytis- og orkunýtingu og draga úr útblæstri. Von er á fyrstu bílunum með tækninni í lok næsta árs eða byrjun 2020.

Tæknin gerir ráð fyrir að sólarrafhlöðurnar hlaði rafmagni á rafhlöðu bílanna, hvort sem er bíla með sprengihreyfli eða tvinn-, tengiltvinn- eða rafbíla.

Í fyrsta áfanga innleiðingarinnar verða notaðar siliconsólarsellur, í öðrum fasa hálfgegnsæjar sólarsellur og í þriðja og síðasta áfanga í þróun tækninnar verður jafnvel hægt að láta léttan sólarselluhjúp þekja nær alla yfirbyggingu bílsins.

Í fyrstu kynslóð sellanna verður þak tvinnbíla fyrirtækisins búnar sólarsellu sem eiga að geta hlaðið 30% - 60% daglegrar raforku inn á rafhlöðu bílsins, allt eftir því hvert birtustigið er hverju sinni.

Önnur kynslóð sellanna, hálfgegnsæjar sólarsellur, verða í fyrsta sinn í sögunni settar á bíla með bensín- eða dísilvél til að létta undir með orkuframleiðslu vélarinnar og minnka eyðslu og útblástur.

Þriðja kynslóð selanna er svo einkum ætluð rafknúnum bílum, hvort sem er tvinn-, tengiltvinn- eða rafbílum enda þótt tæknilega verði ekkert því til fyrirstöðu að nota sellurnar líka á bensín- og dísilbíla.