Sölumet hjá Volkswagen Group 2005

The image “http://www.fib.is/myndir/VolkswagenJetta.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.
Volkswagen Jetta.
Volkswagen Group hefur á árinu 2005 slegið fyrri eigin sölumet. Salan jókst um 3,2 prósent á heimsvísu milli ára og alls seldust 5,24 milljónir bíla. Þetta tilkynnti dr. Bernd Pischetsrieder, stjórnarformaður Volkswagen AG á blaðamannafundi í tengslum við bílasýningunni í Detroit sem opnuð var fjölmiðlum í dag. Hann þakkaði þennan árangur einkanlega vel heppnuðum nýjum bílagerðum. Volkswagen jók hlut sinn í Evrópu á síðasta ári og seldi alls 2,94 mmilljónir bíla þar, sem er 6,7 prósenta aukning miðað við árið á undan, og komst yfir milljón bíla markið í Þýskalandi og seldi þar 1.03 milljónir bíla. Það er 8,2 prósenta söluaukning miðað við árið á undan.
Í S. Ameríku vegnaði VW einnig bærilega og seldi 596.000 bíla í þeim heimshluta sem er 11,7% aukning miðað við næsta ár á undan. Alls seldust 312.000 bílar í Bandaríkjunum en það er hins vegar 7,6 samdráttur milli ára.
Alls seldust 3,09 milljónir fólksbíla af merkinu Volkswagen um heim allan en það er um 0,8% aukning. Volkswagen náði á ný forystu í Vestur-Evrópu eftir fjögur ár og seldi 1,44 milljónir bíla á svæðinu sem var 6% aukning miðað við næsta ár á undan. Sala Volkswagen-bíla á heimamarkaði jókst um 5,6% á árinu en alls seldust 532.000 fólksbílar. Í Suður-Ameríku og Suður-Afríku varð 17% söluaukning en alls seldust 497.000 Volkswagen fólksbílar þar. Í Bandaríkjunum seldust alls 224.000 Volkswagen fólksbílar en sala þar féll um 12,4%. Í Kína fækkaði seldum bílum í 511.000 alls eða sem nam 12,3%. Volkswagen-fólksbílar halda þó forystu á Kínamarkaði sem mest selda tegundin þar.
The image “http://www.fib.is/myndir/SkodaFabia.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.
Skoda náði sínum besta árangri hingað til en alls seldust um 492.000 fólksbílar frá Skoda-verksmiðjunum. Það jafngildir 9% aukningu á milli ára. Heimamarkaður Skoda er Mið- og Austur-Evrópa en þar fjölgaði viðskiptavinum um 1,3% og alls seldust 186.000 bifreiðar þrátt fyrir erfiðar aðstæður á markaði. Salan á Skoda-fólksbílum jókst mest í Vestur-Evrópu eða um 14,8% en alls seldust 276.000 bifreiðar þar.
The image “http://www.fib.is/myndir/BentleyFlyingSpur.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.
Kaupendum Bentley fjölgaði um 31,2% og urðu þeir alls 8.627 á árinu. Um er að ræða nýtt sölumet hjá þessum bresku framleiðendum úrvals lúxusbíla. Fjölgunin varð reyndar mest í Bandaríkjunum eða 51,4% en þar seldust alls 3.752 Bentley-bílar.
The image “http://www.fib.is/myndir/AudiQ7.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.
Sala Audi-bíla náði nýjum hæðum á árinu 2005 en alls seldust 829.000 nýir fólksbílar sem er 6,4% aukning miðað við næsta ár á undan. Salan á Audi gekk sérstaklega vel í Vestur-Evrópu þar sem sala nýrra bíla jókst um 7% en alls seldust 599.000 bílar. Sambærileg tala í Þýskalandi hækkaði um 5,1% en alls seldust 247.000 bílar þar. Sala Audi jókst einnig umtalsvert í Bandaríkjunum eða um 6,6% en alls seldust 83.000 bílar.
The image “http://www.fib.is/myndir/SeatLeon.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.
Á síðasta ári voru framleiddir alls 422.000 Seat-fólksbílar en það er fækkun um 4,5% miðað við næsta ár á undan. Sala jókst þó á heimamarkaði á Spáni um 0,6% en alls seldust 152.000 bílar.
The image “http://www.fib.is/myndir/Lamborghini-Gallardo.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.
Alls voru seldir 1.607 ítalskir Lamborghini-sportbílar á árinu um heim allan. Þetta er 0,9% söluaukning og nýtt met hjá þeirri verksmiðju.
Sala á Volkswagen vinnubílum til atvinnurekstrar jókst um 20,1% en vinnubílar eru hlutfallslega helsti vaxtarbroddurinn innan fyrirtækisins. Alls seldust 401.000 vinnubílar. Á heimamarkaði í Þýskalandi seldust 113.000 bílar sem er 33% aukning miðað við næsta ár á undan. Salan jókst um 23% í Vestur-Evrópu en alls seldust 250.000 bílar.