Sparaksturskeppni

 http://www.fib.is/myndir/Sparak.jpg

Sparaksturskeppni skráning

Sparaksturskeppni FÍB og Atlantsolíu er bæði ætluð fyrir almenning og bifreiðaumboð og fer fram laugardaginn 7. október næstkomandi á sjálfsafgreiðslustöð Atlantsolíu við Bíldshöfða 20 (á planinu framan við Húsgagnahöllina).
Keppendur þurfa að mæta með bifreiðar sínar með fullan eldsneytistank. Áður en bílarnir verða ræstir af stað til keppni verður sérhver bíll fylltur enn frekar og eldsneytislok innsiglað(sú áfylling er innifalin í þátttökugjaldinu sem greitt er við skráningu). Þessi aukaáfylling verður gerð á öllum keppnisbílunum við sömu aðstæður og á sama hátt. Að svo búnu fá keppendur afhent rásnúmer sem þeir festa á bíla sína, kort af ökuleiðinni og leiðarlýsingu.
Keppnisbílar bifreiðaumboða vera ræstir klukkan 11.00 og keppnisbílar almennings kl. 12.00. Miðað er við að mæta um klukkustund fyrir ræsingu.
Þegar bílarnir koma til baka að nýju verður aftur fyllt á eldsneytisgeyma á sama hátt og við upphaf keppni. Þetta er gert til að tryggja sem best og nákvæmast samræmda mælingu á eldsneytiseyðslunni í keppninni. Sú áfylling er innifalin í þátttökugjaldi.

25.000 króna verðlaun
Fyrir þann ökumann sem fer keppnishringinn á sem fæstum lítrum eldsneytis(hvort sem er dísel eða bensín) verður veitt 25.000 króna eldsneytisúttekt ásamt bikar. Fyrir 1. sæti í hverjum flokki eru veittur bikar ásamt 50 lítra eldsneytisúttekt. Fulltrúar bifreiðaumboða keppa jafnhliða almenningi.

Skráning
Væntanlegir keppendur skulu skrá sig til keppninnar hér á heimasíðunni http://www.atlantsolia.is/sparakstur.aspx eða hjá FÍB Borgartúni 33. Þátttökugjald er kr. 900 fyrir félagsmenn í FÍB og/eða handhafa dælulykils Atlantsolíu. Þáttökugjald fyrir aðra er kr.1.800. Þátttökugjaldið verður innheimt á staðnum. Ökumenn skulu hafa með sér aðstoðarmann í bifreiðinni. Heimilt er að hafa fleiri en einn farþega með í bifreiðinni.
Akstursleið

Ekið verður sem leið liggur frá Bíldshöfða í gegnum Mosfellsbæ, upp Mosfellsdal, til hægri um Grafning(framhjá Nesjavallavirkjun)yfir Ljósafossvirkjun, til Selfoss(þar sem verður millitímataka), þaðan að Eyrarbakka, yfir Óseyrarbrú, um Þrengslin til Reykjavíkur. Alls 143,28 kílómetrar.

Almennt um sjálfan aksturinn
Keppnin er sparaksturskeppni þannig að markmiðið er að komast keppnishringinn á sem minnstu magni eldsneytis. Keppnin fer fram í almennri umferð og af þeim sökum skiptir nokkru að keppnisbílar séu ekki til trafala annarri umferð. Því er mikilvægt að keppendur fylgist með og taki tillit til umferðar og reyni eftir megni að liðka til fyrir framúrakstri. Keppnishringurinn verður ekinn innan hámarkstímamarka. Það þýðir að ef bíll fer hægar en tímamörk segja til um eru gefin refsistig.

Keppnisflokkar

Keppnisbílum verður raðað í flokka eftir vélarstærð. Ökumaður þess bíls sem minnst eldsneyti notar í hverjum flokki um sig hlýtur verðlaun en aðalverðlaunin verða veitt þeim ökumanni sem minnstu eldsneyti eyðir í keppninni.

Bensínbílar (tvinnbílar) 1. flokkur Vélarstærð 0-1000 rúmsm.
2. flokkur. Vélarstærð 1001-1600 rúmsm.
3. flokkur. Vélarstærð 1601-2000 rúmsm.
4. flokkur. Vélarstærð 2001 -2500 rúmsm.
5. flokkur, Vélarstærð 2501-4000 rúmsm.
6. flokkur, Vélarstærð 4001 rúmsm og stærri.

 

Díselbílar Sama flokkaskipting og í bensínbílum.