Stefnir í að umferðin í ár verði jafn mikil og metárið 2018

Umferðin í nýliðnum júní er sú mesta sem mælst hefur yfir 16 lykilteljara Vegagerðarinnar í júní en hún reyndist vera tæpum 6% meiri en í sama mánuði á síðasta ári og rétt rúmum 2% yfir gamla metinu, sem sett var árið 2019. Útlit er fyrir að umferðin sé að ná fyrri styrk eftir bakslag vegna Covid-19 árið 2020 og 2021 af því er fram kemur í tölum frá Vegagerðinni.

Hlutfallslega jókst umferðin mest á Austurlandi eða tæp 35% en minnst jókst umferðin við og í kringum höfuðborgarsvæðið eða um 1,4%. Það sem af er ári hefur umferðin nú aukist um 3,6%.  Mest hefur uppsöfnuð umferð aukist um mælisnið á Austurlandi en minnst um mælisnið á og í grennd við höfuðborgarsvæðið en þar mælist ennþá tæplega 1% samdráttur. 

Frá áramótum hefur umferð aukist hlutfallslega mest á miðvikudögum en mánudagar mælast með um hálft prósent samdrátt. Mest er ekið á föstudögum og minnst á laugardögum.