Stolnir bílar skráðir á Íslandi

Mercedes Benz Sprinter, Mercedes Benz R, Porsche Boxter svipaður þeim sem fjallað er um í fréttinni.…
Mercedes Benz Sprinter, Mercedes Benz R, Porsche Boxter svipaður þeim sem fjallað er um í fréttinni. Innfellda myndin er af Karsten Meyerdahl , sem seldi bílinn sem hans eigin eign væri, til Íslands.

Neytendaþátturinn Kontant í danska ríkissjónvarpinu DR1 hefur undanfarið rakið langan og fjölbreyttan svikaferil dansks „athafnamanns“ sem heitir Karsten Meyerdahl. Karsten þessi hefur m.a. átt í viðskiptum með notaða bíla og selt nokkra þeirra til Íslands. Fréttamaður sjónvarpsstöðvarinnar hefur rakið nákvæmlega feril tveggja þessara bíla, beggja stolinna, sem seldir voru til Íslands. Annar er Mercedes Sprinter sendibíll, hinn Porsche Boxter. Báðir eru nú skráðir hér og á íslenskum skráningarnúmerum. Meyerdahl lagði hins vegar á flótta þegar fréttamenn DR fóru að rannsaka viðskipti hans. Hann dvelur nú í Hvíta-Rússlandi ásamt konu sinni sem er ættuð þaðan og fyrirtæki hans, Eleka Group er í gjaldþrotameðferð. Sjónvarpsþáttur um málið verður sýndur í danska sjónvarpinu annað kvöld.

Annar stolnu bílanna ofannefndu, Mercedes Sprinter sendibíllinn var skráður á Íslandi í september 2014. Hann var þá skráð eign danska kaupleigufyrirtækisins M&M Leasing en fyrirtæki Meyerdahls, Eleka Group með hann á kaupleigu. Engu að síður seldi athafnamaðurinn bílinn íslensku fyrirtæki skráðu í Hveragerði, sem sína eign. Bíllinn fékkst skráður á Íslandi að því er virðist með því að framvísa upprunalegum þýskum skráningarskjölum frá fyrsta eiganda bílsins. Sprinterinn er nú atvinnutæki sendibílstjóra sem var gersamlega ókunnugt um þessa sögu bílsins þar til alveg nýlega.

Fréttamaður DR spurðist fyrir um það hjá Samgöngustofu hvernig að skráningu þriggja bíla frá Karsten Meyerdahl hefði verið staðið, þeirra á meðal Sprinter sendibílnum fyrrnefnda. Í svari frá yfirlögfræðingi stofnunarinnar segir að hún hafi eins og skylt er, verið byggð á upprunalegum (original) skráningarskjölum, ýmist dönskum eða þýskum sem skráð væru í svokölluðum Icetra gagnabanka. Það væri hins vegar ekki á ábyrgð íslenskra yfirvalda að rekja eigendaferil bíla umfram þau gögn sem framvísað er við forskráningu. Í svari lögfræðingsins segir m.a. orðrétt:

„The Icelandic regulation on registration requires that original papers are submitted to the Authority when applying for pre-registration.  It is not the responsibility of the Authority to verify the ownership of the vehicles beyond requesting originals of registration documents. When an applicant holds the original registration certificates he is considered to be legally competent to apply for registration."