Styrkir til rafbílakaupa – furðulegur seinagangur

Líkt og kemur fram í frétt sem birt var á vefsíðu FÍB fyrir stuttu stendur til að setja á laggirnar nýtt styrkjakerfi vegna kaupa á hreinorkubílum frá og með næstu áramótum. Nýja kerfið á að taka við af skattaívilnunum vegna rafbílakaupa sem hafa verið í boði á liðnum árum.

Í nýja kerfinu er ráðgert að styrkja einstaklinga vegna kaupa á rafknúnum fólksbílum sem kosta undir 10 m.kr. um 900 þ.kr. kr. á árinu 2024. Styrkhlutfallið vegna ódýrari bíla verður þar með hærra en vegna kaupa á dýrari bílum. Enginn styrkur verður greiddur vegna fólksbíla sem kosta meira en 10 m.kr. Styrkir vegna notaðra innfluttra bíla verða lægri og ná einungis til nýlegra bíla. Í dag er veitt ívilnun í formi lækkaðs virðisaukaskatts vegna allra hreinorkubíla óháð verði, en með breytingunum fá allir hreinorkufólksbílar sem á annað borð fá styrk, bæði heimilisbílar og bílaleigubílar, sömu upphæð.

Ívilnanir vegna kaupa á rafbílum hafa verið í formi lækkaðs virðisaukaskatts. Skattaafslátturinn var lækkaður úr 1.560.000 krónum í 1.320.000 krónur um síðustu áramót. Frá og með 1. Janúar 2024 verður hætt að veita skattaívilnun en í staðinn kemur 900.000 króna styrkur vegna nýskráðra raffólksbíla.

FÍB hefur á engum tímapunkti verið inni í eða upplýst um þessar áætlanir stjórnvalda

Guðlaugur Þór Þórðarson , umhverfis-, orku og loftslagsráðherra var spurður á Bylgjunni fyrr í vikunni, hvers vegna það hafi tekið svona langan tíma að fá nýja styrkjakerfið á hreint? Hann sagði margar ástæður fyrir því en að ,,hagsmunaaðilar hafi algjörlega verið inni í málinu allan tímann þannig að það komi þeim ekki á óvart“. FÍB er hagsmunafélag bifreiðaeigenda sem neytenda og hefur á engum tímapunkti verið inni í eða upplýst um þessar áætlanir stjórnvalda sem varða þó verulega hagsmuni fyrir neytendur í landinu. Fulltrúar margra innflutningsfyrirtækja í bílgreininni kannast heldur ekki við að vera inni í þessum málum.

Samkvæmt upplýsingum frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu er áformað að hægt verði að sækja um styrk vegna notaðra innfluttra rafbíla með afföllum. Mögulegt á að vera að sækja um styrk fyrir allt að fjögurra ára gömul ökutæki. Þegar þetta er ritað er ekki búið að ganga frá endanlegri útfærslu m.a. affallareikningi eða upphæð styrks vegna kaupa á notuðum innfluttum rafbílum.

Ólafur Darri Andrason, skrifstofustjóri umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytisins, sagði í samtali við FÍB að umsóknarferlið og kerfin vegna styrkumsókna væru nánast tilbúin til notkunar. Einstaklingar eiga að sækja persónulega um rafbílastyrk í gegnum island.is eftir að búið er að nýskrá ökutæki á þeirra nafn hér á landi. Tíminn frá umsókn til útgreiðslu styrks inn á umsækjanda á að sögn Ólafs ekki að taka lengri tíma en tvo daga.

Ólafur Darri sagði einnig að tryggt verði í löggjöf skattfrelsi rafbílastyrksins. Lagasetningin vegna þessara breytinga er á ábyrgð og unnin af fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Ýmislegt í breytingaferlinu er ófrágengið og óljóst

FÍB telur boðaðar kerfisbreytingar allt of seint fram komnar. Ýmislegt í breytingaferlinu er ófrágengið og óljóst. Þessi seinagangur bitnar á bílgreininni og neytendum. Á engum tímapunkti leitaði umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytið álits hjá FÍB, hagsmuna- og neytendasamtökum bíleigenda með um 20.000 félagsmenn, um fyrirhugaðar kerfisbreytingar sem varða þó verulega hagsmuni fyrir neytendur. Svona vinnubrögð falla ekki undir vandaða og lýðræðislega stjórnsýslu.