Subaru Outback fékk hæstu einkunn fyrir öryggi og afköst

Ökuaðstoðarkerfi Subaru Outback fékk hæstu meðaleinkunn (88,8%), fimm stjörnur, fyrir framúrskarandi öryggi og afköst. Þetta kemur fram í mati evrópsku öryggisstofnunarinnar, Euro NCAP, sem er sameign bifreiðaeigendafélaganna í Evrópu. Úttektin á aðstoðarbúnaði fólksbílaframleiðenda fór fram á árunum 2020 og 2021.

Úttektin var gerð í kjölfar innleiðingar Euro NCAP á nýjum og kröfuharðari öryggisprófunum frá því sem áður var og hefur reynst talsverð áskorun fyrir bílaframleiðendur.

Í prófunum Euro NCAP, sem stjórnvöld Evrópuríkja standa að ásamt samtökum neytenda og bifreiðaeigenda, hlaut nýjasta útgáfa Subaru á Eyesight Driver Assist öryggiskerfinu 95% stiga þegar kom að afköstum kerfisins og miklu alhliða öryggi við ólíkar aðstæður.

Gæði kerfisins sem staðfest er af Euro NCAP endurspeglar vel þá nálgun Subaru sem hefur það að markmiði að eigi síðar en 2030 bíði hvorki nokkur ökumaður né farþegi í Subaru bana í umferðarslysi auk þess sem markmiðið er að enginn gangandi eða hjólandi vegfarandi látist af völdum ákeyrslu við Subaru.