Subaru XV og Impreza fengu báðir 5 stjörnur

Öryggi Subaru XV og Impreza á Evrópumarkaði fóru nýlega gegnum ítarlegar prófanir hjá umferðaröryggisstofnuninni Euro NCAP og komu þeir best út í sínum flokki í samanburði við aðrar bíltegundir sem einnig voru prófaðar í sama flokki.

Báðir fengu full hús stiga, fimm stjörnur, og má geta þess að enginn bíll frá Subaru hefur áður skorað jafn mörg stig hjá Euro NCAP fyrir öryggi fullorðinna farþega og gangandi vegfarenda og í nýgerðum prófunum. Einnig fengu þeir 5 stjörnur fyrir sjálfvirka neyðarhemlunarkerfið og akreinaaðstoðina og segir í umsögn Euro NCAP að báðir bílar veiti mjög mikið öruggi í umferðinni.

Fram kom í máli Masamichi Kudo, stjórnarformanns og forstjóra Subaru Europe þegar niðurstaða prófananna lá fyrir að þennan árangur Subaru megi fyrst og fremst þakka framúrskarandi hönnum og háþróuðum öryggisbúnaði.

Það sé staðalbúnaður í öllum bílum Subaru og ætlað að veita farþegum og gangandi vegfarendum mesta mögulega öryggi. Til að uppfylla þau markmið Subaru skiptir aðstoðarkerfið EyeSight lykilhlutverki, en EyeSight þykir í dag það besta á markaðnum.

Nýr Subaru XV, sem nýverið var kynntur hjá BL, er á nýjum alhliða undirvagni sem notaður er í öllum nýjustu bílgerðum Subaru. Undirvagninn veitir bæði meira öryggi en fráfarandi undirvagnar auk betri og þægilegri aksturseiginleika. Nýr XV er m.a. búinn 7 öryggispúðum, þar á meðal loftpúða til að verja hné ökumanns, og nýjum og betri öryggisbeltum sem veita bæði meiri vernd í bílveltu og draga úr líkum á innvortis meiðslum.