Sumarleyfin í Evrópu

http://www.fib.is/myndir/Sol_tegning.jpg

ADAC, systurfélag FÍB í Þýskalandi hefur gefið út árlega töflu um sumarleyfi í ríkjum Evrópu. Ágætt er að hafa þessa töflu við höndina þegar verið er að skipuleggja bílferðalag um Evrópu í sumarfríinu.

Taflan hefur verið prentuð og hana er að finna á bls. 47 í Þjónustubók FÍB 2007 sem póstsend hefur verið til allra félagsmanna FÍB.

Við minnum félagsmenn á að taka Þjónustubókina með í ferðalagið hvort heldur sem ferðast er innanlands eða utan. Í henni eru miklar upplýsingar um afslætti og sérkjör sem félagsmenn njóta bæði á Íslandi sem og erlendis.

Nánari upplýsingar um þá afslætti og sérkjör sem félögum FÍB bjóðast erlendis er auk þess að finna hér á heimasíðunni með því að smella á Show your Card-merkið í tilboðshorninu til hægri á síðunni.http://www.fib.is/myndir/Evropusumarfri2007.jpg

 Gleðilegt sumar