Suzuki áreiðanlegasti bíllinn að mati sænskra bíleigenda

Suzuki er áreiðanlegasti bíllinn að mati þeirra sem gáfu bílum sínum einkunn á heimasíðu hins sænska Auto Motor & Sport. Niðurstöðurnar eru kynntar í nýjasta tölublaði tímaritsins og eiga við um bíla sem eru fimm ára eða yngri.

Alls lögðu 25.000 bíleigendur mat á sinn bíl á vef tímaritisins, www.automotorsport.se. Fyrir tveimur árum birti tímaritið niðurstöður fyrir árin 2006-2010 og trónaði Lexus þá á toppnum yfir áreiðanlegustu bílana. Merkið fellur hins vegar um fimm sæti og er samkvæmt niðurstöðunni í 6. sæti nú. Niðurstöðurnar eru mældar á kvarða sem hæst getur orðið 100. Lexus féll úr 96 stigum í 93.

Efst trónir nú Suzuki sem fær einkunnina 97 og hækkaði sig um 5 stig frá fyrri könnun. Á óvart kemur að Alfa Romeo, sem oft sleikir botninn í könnunum af þessu tagi, er í öðru sæti með 95 stig og hækkaði sig um 5 stig milli kannana eins og Mazda, sem er í þriðja sæti með 94 stig. Á botninum eru síðan Cadillac, Kia og Chevrolet.

Árgerðir 2008–2012

 5 efstu: 

1. Suzuki 97 + 5 stig.

2. Alfa Romeo 95 + 5 stig.

3. Mazda 94 + 5 stig.

4. Mitsubishi 94 ± 0 stig.

5. Seat 94 + 7 stig.

5 neðstu:

1. Cadillac 76 - 2 stig. 

2. Kia 81 - 5 stig.

3. Chevrolet 82 - 4 stig.

4. Volvo 82 + 6 stig.

5. Citroën 83 + 4 stig.