Suzuki Ignis vakti athygli

Fjölmargir lögðu leið sína í Suzuki-umboðið um helgina þegar frumsýndur var Suzuki Ignis. Bíllinn er fjórhjóladrifinn örjeppi sem er fyrsti sinnar tegundar á Íslandi. Hann stenst nútímakröfur um sparneytni og þægindi í akstri.

Ignis er fjölhæfur bíll sem felur í sér einfaldleika, stílhreina hönnun á yfirbyggingu og mikið notagildi. Hann er fyrirferðalítill í formi og þægilegur í akstri, hátt aðgengi og mikill veghæð (18 cm). Ignis er fáanlegur beinskiptur með sparneytinni 1242 cc vél, meðaleyðsla er aðeins 5,0 lítrar á hundraðið. Ignis kemur með hátæknivæddu 4WD ALLGRIP AUTO.

Hann er búin háþróaðri öryggistækni sem grípur inn í atburðarrásina ef á þarf að halda, tveggja myndavéla hemlaaðstoð og akreinavari eru staðalbúnaður í GLX. Farangursrýmið í Ignis er 264 lítrar og aftursætin eru færanleg óháð hvort öðru í hlutföllum 50:50.

Fyrir miðju mælaborðs er hágæða snertiskjár með Mirrorlink snjallsímatengingu. Hljómtækin eru með sjö tommu snertiskjá (SDLA) Bluetooth, bakkmyndavél og leiðsögukerfi (GLX). Tengiskjár snjallsímans, SLD, nýtir sér Apple CarPlay og MirrorLink.

Þegar samhæfður iPhone er tengdur kerfinu með USB tengingu gerir Apple CarPlay þér kleift að hringja og svara símhringingum, spila tónlist úr símanum, senda og taka á móti skilaboðum og fá leiðarlýsingu, allt með raddskipunum eða fingrasnertingu á skjánum. Að sama skapi birtir MirrorLink hin ýmsu smáforrit snjallsímans á snertiskjánum og þannig er hægt að nýta sér aðgerðir símans í gegnum skjáinn.

Margmiðlunaraðgerðir eru gerðar einfaldar á 7 tommu snertiskjánum. Aðgerðirnar varða m.a. hljómtæki, handfrjálsan síma, leiðsögukerfi og uppsetningu snjallsímans.