Tafir gætu orðið á umferð upp á Keflavíkurflugvöll

Farþegar á leið sinni upp á Keflavíkurflugvöll gætu lent í töfum en á leiðinni þangað standa nú yfir malbikunarframkvæmdir í dag og á morgun.

Í kvöld  og aðfaranótt laugardags er stefnt að því að malbika Rósaselshringtorg í Keflavík. Hringtorginu verður lokað í tveimur áföngum og verður umferðarstýring til og frá flugvelli á meðan framkvæmd stendur yfir. Hjáleiðir verða settar upp, umferðahraði lækkaður framhjá vinnusvæðinu og má búast við lítilsháttar umferðartöfum.

Einnig er stefnt á að malbika akreinar á Reykjanesbraut að hringtorginu. Veginum verður lokað á meðan, hjáleiðir settar upp og umferðarhraði lækkaður framhjá vinnusvæðinu. 

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.