Tekið tillit til ábendinga Bílgreinasambandsins

 Bílgreinasambandið átti góðan fund með Fjármálaráðuneytinu fyrir helgina, þar sem farið var yfir skýrslu um „Skatta á ökutæki og eldsneyti 2020 – 2025“ sem kom út 17. ágúst síðastliðinn. Í tilkynningu frá Bílagreinasambandinu kemur fram að niðurstaða skýrslunnar er ánægjuleg í grófum dráttum og vel unnin. Tekið hefur verið tillit til ábendinga Bílgreinasambandsins og samvinna hefur verið góð.

Á sama tíma er ánægjulegt að sjá sýn til lengri tíma þar sem unnið er með umhverfissjónarmið í huga. Á heildina litið telur Bílgreinasambandið að um góða lendingu sé að ræða.

Ef Alþingi gerir ekki breytingar á skýrslunni og fylgir eftir þeirri vinnu og tillögum sem í henni eru þá verða ekki þær hækkanir á ökutækjum sem vænta mátti. Séð var fram á að með 10 flokka prósentukerfi myndu ökutæki hækka umtalsvert vegna breytinga á fyrirkomulagi á mælingu útblásturs.

Þá kemur fram að skýrslan leggur til að fella niður 10 flokka prósentukerfi um næstu áramót og taka upp línuleg vörugjöld miðað við útblástur ökutækja. Með þeirri leið er verið að koma í veg fyrir hækkunina sem verður að teljast jákvætt fyrir neytendur og bílgreinina í heild sinni.

Það eru þó atriði í skýrslunni sem Bílgreinasambandið fór yfir með Fjármálaráðuneytinu og taldi hafa verið yfirsjón eða þarf að gæta betra samræmis. En samkvæmt skýrslunni getur á árinu 2019 orðið misræmi á vörugjöldum ökutækja. Annað atriði sem Bílgreinasambandið telur að þurfi að endurskoða er að í skýrslunni er breyting á vörugjöldum fornbifreiða og fornbifhjóla 40 ára og eldri.

Í dag eru 13% vörugjöld á þennan flokk ökutækja en samkvæmt nýrri tillögu munu þær fara inn í línulega álagningu frá og með árinu 2019 og allar lenda í 65% vörugjaldaflokki. Þriðji þátturinn sem ber að skoða eru vörugjöld á pallbifreiðar. Þar er mikið misræmi og minni léttari ökutæki fá hærri vörugjöld en stærri og meira mengandi pallbifreiðar sem bera í dag 0% vörugjöld.

Meirihluti þessara bifreiða er notaður til einkanota og telur Bílgreinasambandið að þar eigi að gæta samræmis. Sambandið hvetur þó til að ökutæki notuð í atvinnuskyni eigi að fá niðurfellingar.