Þingvallavegur lokaður - hjáleið um Vallaveg

Vegna endurbóta á Þingvallavegi (36) um þjóðgarðinn á Þingvöllum verður hann lokaður frá og með þriðjudeginum 31. júlí fram í október og aftur næsta vor. Hjáleið verður opin um Vallaveg. Sá vegur er þó mjór og hentar illa fyrir stærstu bíla, vegfarendur eru hvattir til að aka varlega og íhuga að nýta aðrar leiðir.

Vegagerðin áformar að hefja framkvæmdir við endurbætur á Þingvallavegi, frá Þjónustumiðstöðinni og að vegamótum við Vallaveg.

Endurbæturnar verða unnar í tveimur áföngum, sumarið 2018 og sumarið 2019. Þingvallavegi verður lokað fyrir allri umferð frá mánudeginum 30.07.2018 og fram í október 2018. Sumarið 2019 er reiknað með að loka þurfi á tímabilinu apríl til september.  Bent er á að veginum verður lokað austan við Þjónustumiðstöðina þannig að aðgengi að henni verður óbreytt.

Áður en framkvæmdir hefjast verður Vallavegur lagfærður eins og hægt er, en bent er á að vegurinn er mjór og hentar illa fyrir stærstu bíla. Vegagerðin óskar eftir því að ferðaþjónustufyrirtæki noti minni bíla, eins og kostur er, á meðan framkvæmdir standa yfir.