Þjónustukönnun FÍB

Félag Íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, vill efla þjónustuna við félagsmenn. Af því tilefni hefur verið send út þjónustukönnun með það að markmiði að fá endurgjöf frá félagsmönnum varðandi þá þjónustu sem þeir hafa nýtt sér.

Það er FÍB mikilvægt að heyra frá félagsmönnum sem hafa nýtt sér þjónustu FÍB, hvað fór vel og jafnframt hvað má bæta. Sem stendur hefur könnuninni verið tekið vel og þátttakan verið til fyrirmyndar.

FÍB vill þó vekja athygli á og hvetja félagsmenn til að svara könnuninni en það ætti ekki að taka lengri tíma en 3-4 mínútur. Skoðun félagsmanna skiptir máli.

Hægt er að nálgast könnunina hér


AO

Þeir sem kjósa geta skráð netfangið sitt í lok könnunar og 10 heppnir aðilar eiga möguleika á að vinna 10.000 kr eldsneytisúttekt hjá Atlantsolíu.

Dregið verður út í byrjun nóvember.