Þrjár milljónir Suzuki Swift

Japanski bílaframleiðandinn Suzuki Motor náði þeim merka áfanga fyrr í þessum mánuði að samanlögð sala á Suzuki Swift fór yfir  þrjár milljónir eintaka frá markaðssetningu á bílnum.

Suzuki hefur í gegnum tíðina ekki síst sérhæft sig í framleiðslu og sölu á litlum og sportlegum fólksbílum og er Swift skýrt dæmi um þá áherslu.

Bíllinn var fyrst framleiddur og seldur í Japan í nóvember 2004 en hann var engu að síður hannaður og þróaður sem bíll fyrir alla heimsbyggðina. Árið 2005 hófst sala á bílnum í Ungverjalandi, Indlandi og Kína. Nú er bíllinn fáanlegur í yfir 120 löndum víðs vegar um heiminn.

Bíllinn hefur unnið til fjölda verðlauna. Hann var valinn bíll ársins af blaðamönnum í Japan 2006 og 2011 og hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar í Evrópu, Indlandi og víðar. Suzuki Swift varð fyrir valinu sem Bíll ársins 2006 í árlegu kjöri Bandalags íslenskra bílablaðamanna.