Þyngri ökutæki éta upp vegina

Björn Leví Gunnarsson, þingamaður Pírata, fékk á dögunum svar frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn sinni um meðal annars meðalkolefnisspor hvers ökutækjaflokks. Spurt var um heildarfjölda ökutækja í hverjum ökutækjaflokki, um áætlaða meðalþyngd ökutækja, svo og um heildarfjölda ekinna kílómetra í hverjum flokki.

Í umfjöllun um málið á visir.is Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, segir að þá liggi það fyrir að hver kílómeter ekinn á þyngri bílum er á við mörg þúsund ekinna kílómetra fólksbíla með tilliti til álags á vegi.

Svar við fyrirspurn Björns Levís til Sigurðar Inga Jóhannssonar liggur fyrir sem snýr að þessu efni. Björn Leví spurði hver heildarfjöldi ökutækja væri í hverjum ökutækjaflokki? Hver er áætluð meðalþyngd ökutækja og heildarfjöldi ekinna kílómetra í hverjum flokki, skipt eftir þyngdartíund?

Björn Leví óskaði þess að svar væri sundurliðað eftir ökutækjaflokkum og eftir tegund aflgjafa innan hvers flokks, þ.e. bensín, dísill, rafmagn, blanda tveggja eða annað.

Þingmaðurinn segir að í svarinu megi til dæmis sjá mun á fólksbílum og stærri bílum bæði hvað varðar fjölda ekinna kílómetra sem og losun. Og segir að þar mætti hafa hugfast álag á vegi sem þyngri bílar valdi