Tilkynning um álagningu vanrækslugjalds

FÍB vill minna eigendur fornbíla, húsbíla, mótorhjóla og ferðavagna á að þann 2. október nk. leggst á 15.000 krónu vanrækslugjald sbr. 7. gr. reglugerðarinnar um skoðun ökutækja sem færa átti til skoðunar fyrir 1. ágúst á þessu skoðunarári.