Tillitssemi og virðing gagnvart lífi og limum

http://www.fib.is/myndir/Drulluhjol.jpg

Umferðarráð hvetur til aðgæslu í umferðinni gagnvart bæði hjólreiðafólki og bifhjólafólki og beinir jafnframt tl þeirra sem eru á tveggja hjóla farartækjum í umferðinni að þeir gæti sín einnig. Ályktun ráðsins um þessi mál er svohljóðandi:

„Bifhjólum í umferð hér á landi hefur fjölgað gífurlega á undanförnum árum. Í árslok árið 2000 voru 2.278 bifhjól skráð hér á landi, en í lok síðasta árs voru þau 9.009. Alvarlega slösuðum bifhjólamönnum hefur einnig fjölgað mikið á sama tímabili. Því er það sameiginlegt viðfangsefni bifhjólamanna og ökumanna bifreiða að gefa auknu umferðaröryggi gaum. Báðir aðilar þurfa að hafa sívakandi athygli og sjái bílstjóri bifhjól þarf hann alltaf að vera sérstaklega vel á verði. Hann þarf alltaf að líta tvisvar til hliðar og fylgjast nákvæmlega með hreyfingum bifhjólsins. Á sama hátt er grundvallaratriði að ökumenn bifhjóla aki á löglegan hátt, séu í hlífðarfatnaði og fylgi hámarkshraðareglum. Með því gera þeir sitt til að auka öryggi í umferðinni.
 
Umferðarráð vill minna á sívaxandi hóp fólks sem notar reiðhjól sem samgöngutæki og hjólar eftir götum eins og lög segja til um. Nú eru yfir 7000 þáttakendur í keppninni "Hjólað í vinnuna". Ökumenn bifreiða eru hvattir til að virða rétt þeirra og sýna tillitssemi. Reiðhjól eru ökutæki í umferðinni sem fara oftast hægar en bifreiðar. Ökumenn bifreiða þurfa að gefa reiðhjólafólki nægjanlegt rými þegar þeir taka framúr. Þar sem aðstæður á götum eru þröngar eiga bílstjórar að bíða með framúrakstur þar til það er öruggt. Hjólreiðamönnum ber að sýna annarri umferð fulla tillitssemi og hleypa hraðskreiðari umferð framúr, þegar það er óhætt. Ennfremur að virða forgangsrétt gangandi vegfarenda á gangstéttum og á blönduðum útivistarstígum.“