Tímamótasýning hjá Toyota

Um helgina efnir Toyota til stórsýningar í tengslum við áfanga í apríl þegar náðist að 50.000 bílar frá Toyota og Lexus eru í umferð á Íslandi.

Vegna tímamótanna verða sýningar næstkomandi laugardag, 29. apríl kl. 12.00-16.00 hjá viðurkenndum söluaðilum Toyota í Kauptúni, í Reykjanesbæ, á Akureyri og Selfossi auk þess sem Lexus verður með sýningu í nýjum sýningarsal í Kauptúni.

Af þessu tilefni verða 50 bílar boðnir á tímamótaverði þennan eina dag og allir sem reynsluaka eiga möguleika á að vinna 50.000 vildarpunkta Ícelandair í happdrætti. 50.000 viðbótar-vildarpunktar fylgja öllum bílum sem keyptir verða á sýngunni.

Eigandi 50.000 bílsins verður leystur út með gjöfum og tímamótabíllinn verður sýndur hjá Toyota í Kauptúni.

Meðal þeirra 50.000 bíla frá Toyota og Lexus sem nú eru í umferð má meðal annars finna Lexus LS 400 frá 1997, Land Cruiser frá 1974, Camry frá 1986 og Celica og Corona frá 1972. Elsti bíllinn frá Toyota sem er enn í notkun á landinu mun vera Corolla, árgerð 1967 en enn eldri bílar eru til sem safngripir.