Töluverð andstaða gegn veggjöldum í Noregi

Það er ekki bara hér á landi sem umræðan er mikil gegn veggjöld heldur eru Norðmenn í sömu málum. Segja má að frændur vorir séu komnir lengra á veg í þeim efnum því nú bendir flest til þess að samtök í Noregi, sem berjast gegn veggjöldum, bjóði fram víða um landið í sveitarstjórnakosningum, sem fara þar fram á næsta ári.

Í Noregi hafa veggjöld verið um langa hríð og er á ætlað að þau verði um 200 milljarðar á yfirstandandi ári. Megintilgangur þeirra er að hraða vegaframkvæmdum. Þetta kemur fram í umfjöllun á ruv.is um málið.

Töluverð umræða hefur verið um veggjöld hér á landi að undanförnu. Þar er einna helst rætt um innheimtu vegna helstu aðkomuleiða að höfuðborginni, Suðurlandsvegi, Vesturlandsvegi og Reykjanesbraut.  Umræðan er í fullum gangi og hugmyndir í þessum efnum verða kynntar fljótlega.

Andstaða við innheimtu veggjalda í Noregi er töluverð en samtök, Folkeaksjonen nei til mer bompenger,  sem berjast gegn þeim voru stofnuð í Noregi fyrir fjórum árum síðan. Reyndar buðu þessi samtök sig fram sem flokkur í Stavanger 2015 og fengu þrjá kjörna fulltrúa. Markmið og tilgangur samtakanna er að afnema veggjöld sem fjármögnunarleið. Það sé á ábyrgð ríkisins að standa undir fjármögnum þeirra því uppbygging innviða sé samfélagslegt verkefni.

Umfjöllun um málið á ruv.is má nálgast hér.