Edsneytissala dregst mikið saman í kórónuveirufaraldrinum

Eldsneytissala í september 2020 var um 28,2 þúsund rúmmetrar samkvæmt bráðabirgðatölum. Þessi sala er umtalsvert minni (13,6%) en salan í september 2019 sem var 32,6 þúsund rúmmetrar. Þetta kemur fram í tölum sem Hagstofan var að birta

Stór hluti eldsneytissölu í fyrra var á erlend greiðslukort, eða um 18%, á meðan að aðeins um 2% af sölu þessa árs hefur verið með þeim greiðslumáta. Samanlögð sala fyrir utan erlend greiðslukort var því 27,7 þúsund rúmmetrar í september í ár sem er 3,5% meiri sala en í september í fyrra (26,7 þúsund rúmmetrar).

Í tölunum kemur fram að mikill samdráttur varð í eldsneytissölu á erlend kort í tengslum við ástandið sem skapast hefur vegna kórónuveirufaraldursins (Covid-19). Til samanburðar var hlutfall af rúmmáli eldsneytis sem selt var á erlend kort á bilinu 15-20% yfir sumarmánuðina í fyrra en var á bilinu 0,5-7,7% í sumar.

Íslendingar ferðuðust hins vegar mikið innanlands þannig að samanlögð sala fyrir utan erlend greiðslukort í sumar (maí-ágúst) var 140,9 þúsund rúmmetrar sem er 17,6% meiri sala en hún var fyrir sama tímabil í fyrra (119,8 þúsund rúmmetrar). Heildarsala það sem af er árinu 2020 er um 1,9% minni en fyrir sama tímabil í fyrra samkvæmt tölum Hagstofunnar.