Toyota innkallar 284 Toyota bifreiðar

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Toyota á Íslandi ehf  um að innkalla þurfi 284 Toyota bifreiðar af ýmsum gerðum af árgerð 2020 til 2021. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að DCM kerfið virki ekki sem skyldi vegna hugbúnaðarvillu.

Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina símleiðis eða bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.