Toyota innkallar RAV4

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Toyota á Íslandi ehf  um að innkalla þurfi 30 Toyota RAV4 bifreiðar af árgerð 2019. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að stýrisarmar bifreiðanna séu gallaðir.

Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.