Toyota kynnir til leiks Land Cruiser 250 tvinnbíl
Toyota Land Cruiser hefur lengi verið konungur jeppana hér á landi. Nýjasti 250 bíllinn kom til landsins í fyrra og hefur slegið í gegn síðan þá. Hægt er að fá bílinn í mismunandi týpum eins og þær klassísku GX, VX og Luxury.
Toyota voru að kynna á dögunum að hægt verður að fá Land Cruiser 250 sem tvinnbíl (e. hybrid). Bíllinn verður með hina klassísku 2,8 lítra dísel vélina en með þremur nýjum meginþáttum: nýr rafmótor-rafall (e. electric motor-generator), 48V liþíum-jóna rafhlaða og DC-DC breyti.
Tvískipta vélin gefur bílnum auka 16 hestöfl og hleður inn á geyminn þegar ökumaður bremsar. Það getur komið sér vel og hjálpað bílnum að eyða minna. Toyota segir að heildarhagkvæmni bílsins sé búin að bætast.
Nýi rafallinn hefur verið staðsettur ofarlega í vélarrýminu til þess að hægt sé að keyra í ám og vötnum. Samkvæmt Toyota er hægt að keyra í vatni allt að 700 mm dýpi án þess að lenda í veseni.
Það verður spennandi að sjá hvernig þessi nýi Land Cruiser tvinnbíll kemur út.