Toyota umhverfisfyrirtæki ársins

Umhverfisverðlaun atvinnulífsins voru afhent í gær við hátíðlega athöfn á Umhverfisdegi atvinnulífsins. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti verðlaunin. Umhverfisfyrirtæki ársins er Toyota  og veitti Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota þeim viðtöku við athöfn í Hörpu.

„Þessi verðlaun eru okkur mikils virði og starfsfólki okkar góð hvatning. Stofnendur fyrirtækisins sýndu mikla framsýni í umhverfismálum og hófu stuðning við skógrækt fyrir tæpum þremur áratugum. Með því var lagður grunnurinn að þeirri umhverfisstefnu sem við fylgjum í dag. Toyota styður enn við skógrækt og við höfum fylgt því eftir með stuðningi við endurheimt votlendis,“ sagði Úlfar.

,,Öll erum við á sama báti og berum saman ábyrgð á umhverfi okkar. Þetta á jafnt við um daglegt líf einstaklinga, starfsemi fyrirtækja og stefnumörkun opinberra aðila. Við hjá Toyota höfum verið með alþjóðlega umhverfisvottun í 10 ár og högum starfsemi okkar samkvæmt þeim ströngu viðmiðunum sem þar eru settar. Sá rammi utan um starfsemina sem vottunin setur er öflugt tæki til að takast á við þær áskoranir í umhverfismálum sem blasa við á hverjum degi,“ sagði Úlfar ennfremur.

Hjá Toyota vinna um 200 starfsmenn og fyrirtækið velti 21 milljarði síðasta ári. Í rökstuðningi dómnefndar kemur fram að regluleg þjálfun er notuð til að auka áhuga starfsfólks á umhverfismálum.

„Umhverfisstefna Toyota er endurskoðuð á hverju ári og markmiðið er að ná meiri árangri ásamt því að tryggja öryggi og velferð starfsfólks sem tekur virkan þátt.“

Endurvinnsla er mikilvæg og fer hlutfall óflokkanlegs sorps hjá Toyota stöðugt minnkandi og er nú komið niður í 13% af heildarúrgangi. Það er gott bæði fyrir umhverfið og reksturinn en bæði starfsmenn og viðskiptavinir eru hvattir til að flokka úrgang og tekur Toyota þátt í kostnaði við grænar tunnur starfsmanna. Í fyrstu voru lítil skref stigin en þáttaskil urðu þegar vottað umhverfisstjórnunarkerfi var innleitt árið 2008.

Á myndinni frá vinstri: Úlfar Steindórsson forstjóri Toyota, Ágústa Steingrímsdóttir umhverfis- og öryggisstjórn Toyota, Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands, Bjartur Máni Sigurðsson umhverfis- og öryggisstjórn Toyota, Ragna Sara Jónsdóttir formaður dómnefndar og Kristján Þorbergsson, fjármálastjóri Toyota og annar eigenda.