Trúir því ekki að óreyndu að yfirvöld ætli sér að taka upp veggjöld

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, segist ekki trúa því að óreyndu að yfirvöld ætli sér að taka upp veggjöld á helstu stofnæðum höfuðborgarsvæðisins til að fjármagna samgönguframkvæmdir og Borgarlínu. Runólfur segir að ef þetta verði að veruleika geti íbúar á ákveðnum svæðum fengið á sig auknar álögur sem gætu numið á bilinu 30-40 þúsund á mánuði. Þetta kom fram í viðtali við Runólf Ólafsson í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Á fundi Sigurðar Inga Jóhannssonar, samgönguráðherra, með fulltrúum Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í gær þar sem kynnt var framtíðarsýn ríkis og sveitarfélaga um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu kom fram að veggjöld á helstu stofnæðum höfuðborgarsvæðisins verða tekin upp til að fjármagna samgönguframkvæmdir, þar með talið borgarlínu.

Fram kom í fréttinni að efni fundarins hefur ekki verið gert opinbert en samkvæmt heimildum verða um 125 milljarðar króna settir í hinar ýmsu framkvæmdir fram til ársins 2033. Þar vegur þyngst borgarlína sem áætlað er að kosti 70 milljarða króna. Tæplega helmingur heildarpakkans, eða um 60 milljarðar króna, verður fjármagnaður með veggjöldum á helstu stofnbrautum höfuðborgarsvæðisins á umræddu tímabili. Eru hugmyndir um að  gjöldin verði á bilinu tvö til sex hundruð krónur fyrir hverja ferð, þau verði hæst á háannatíma en lægri á öðrum tímum sólarhrings.   

Runólfur Ólafsson sagðist undrandi á þessum hugmyndum og segist að óreyndu ekki trúa því að þetta séu einhverjar raunverulegar hugmyndir.

,,Ef þetta væri hins vegar að ganga fram þá mættu kannski  íbúar á ákveðnum svæðum á höfuðborgarsvæðinu búast við því að fá á sig ákveðnar álögur sem væru á bilinu 30-40 þúsund á mánuði. Það gerir um 400-500 þúsund á ári og til að afla þeirra tekna þarf fólk að hafa yfir 700 þúsund krónur í tekjur. Fjölskyldurnar í landinu eru nú þegar að borga hátt í 80 milljarða króna í skatta í formi einkabílsins. Aðeins hluti af þeirri upphæð hefur gengið til samgangna. Það var val sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu að draga úr samgönguframkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu á síðustu árum og á móti var aukinn styrkur til strætó og almenningssamgangna. Því miður hefur það ekki skilað þeim árangri að halda í við þá umferðaraukningu sem átt hefur sér stað. Hluti af þeirri umferðaraukningu tengist m.a.stór aukinni ferðamannaþjónustu. Það er svo alveg furðulegt að ætla síðan að setja stórauknar álögur á afmarkaðan hóp landsmanna á höfuðborgarsvæðinu til þess að koma hlutum í það horf sem eðlilegt væri, og hefði átt fyrir löngu að gera ráðstafanir með,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, í samtali við Bylgjuna.