Umferð á Hringveginum jókst í janúar

Umferðin í janúar jókst um 5,9 prósent miðað við sama mánuð á síðast ári sem kemur ef til vill svolítið á óvart þar sem tíðarfar var frekar erfitt í mánuðinum og þörf á lokunum fjallvega tíðari en oft áður. Þetta kemur fram í tölum frá Vegagerðinni.

Með þessu var sett nýtt met í fjölda bifreiða á Hringveginum í janúar frá upphafi þessara mælinga. Eigi að síður var aukningin mun meiri fyrir ári síðan sem er vísbending um að það dragi úr hraða umferðaraukningarinnar.

Umferðin jókst um 5,9% milli janúarmánaða 2017 og 2018, þar með var slegið nýtt met í fjölda ökutækja á Hringveginum í janúar.  Aukning varð í öllum landssvæðum en mest jókst umferðin um Suðurland eða um rúmlega 10%.

 Minnst jókst umferð um Vesturland eða um 2%. Eins og sést á töflunni neðar á síðunni þá var aukningin um tvöfalt meiri á síðasta ári á sama tíma fyrir ári þ.a.l. kann þetta að gefa vísbendingu um hóflegri aukningu nú í ár.

Athygli vekur að umferðin um teljarasnið á Hellisheiði jókst mest allra mælipunkta.

Umferðin jókst í öllum vikudögum nema sunnudögum en þar varð um 6,2% samdráttur en mest jókst umferðin á fimmtudögum eða um 10,6%.

Mest var ekið á föstudögum en minnst á sunnudögum.

Talnaefni