Umferð eykst á höfuðborgarsvæðinu og á Hringvegi

Umferðin um þrjú mælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu jókst um 2,8 prósent í október. Þótt þetta sé heldur minni aukning en sást á Hringveginum í sama mánuði var eigi að síður slegið umferðarmet. Útlit er fyrir að umferðin í ár á svæðinu aukist um 4,5 prósent Samkvæmt tölum frá Vegagerðinni.

Öllu hógværari aukning varð í umferð yfir þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu í október en á Hringvegi í sama mánuði en umferðin jókst um 2,8% miðað við sama mánuð á síðasta ári. Um er að ræða nýtt met í októberumferð á höfuðborgarsvæðinu en aldrei áður hafa farið jafn mörg ökutæki um mælisniðin þrjú í október mánuði.

Mest jókst umferðin um mælisnið ofan við Ártúnsbrekku eða um 3,2% en minnst jókst umferðin um Hafnarfjarðarveg við Kópavogslæk eða um 1,8%.

Í nýliðnum október var mest ekið yfir mælisnið á Reykjanesbraut eða tæplega 70 þúsund ökutæki á sólarhring en minnst yfir mælisnið á Hafnarfjarðarvegi eða rétt rúmlega 48 þúsund ökutæki á sólarhring. Mest var ekið á föstudögum, í síðasta mánuði, en minnst á sunnudögum.

Enn eitt metið í umferðinni á Hringvegi

Umferðin á Hringveginum heldur áfram að aukast. Hún jókst í október um rúm 6 prósent miðað við sama mánuð fyrir ári síðan. Þessi mikla aukning skýrist líklega að einhverju leyti af því að færð var almennt góð. Frá áramótum hefur umferðin á Hringvegi aukist um rúm átta prósent sem er mjög mikil aukning.

Umferðin jókst mjög svipað í öllum landssvæðum en mest um Vesturland eða um 8,6% en minnst í grennd við höfuðborgarsvæðið eða um 4,6%. Núna hefur umferð aukist um 8,1%, frá áramótum, miðað við sama tímabil á síðasta ári.

Er þetta met aukning miðað við árstíma, ef frá er talin aukningin eftir Covid-19 árið 2020. Frá áramótum hefur umferð vaxið mest á mánudögum, eða um 10,5%, en minnst á sunnudögum, eða um 6,6%. Almennt hefur umferð vaxið um 8,3% á virkum dögum en um 7,2% um helgar.