Umferð­in jókst í maí á höfuð­borgar­svæð­inu

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í maí jókst um 2,4 prósent og nú er útlit fyrir að umferðin um lykilmælisniðin þrjú aukist um 3,5 prósent í ár. Þannig að þrátt fyrir samdrátt í apríl og óbreytta umferð í ferbrúar er nú útlit fyrir áframhaldandi stöðuga aukningu umferðar, rétt eins og á Hringveginum. Þetta kemur fram í tölum frá Vegagerðinni.

Umferð jókst mest um mælisnið á Vesturlandsvegi, ofan Ártúnsbrekku

Umferðin, yfir þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu, reyndist 2,4% meiri en hún var í sama mánuði á síðasta ári. Mest jókst umferð um mælisnið á Vesturlandsvegi, ofan Ártúnsbrekku, eða um 3,5%. Nú hefur umferð aukist um 2,1%, frá áramótum, sé miðað við sama tímabil á síðasta ári.

Mest var ekið á föstudögum
Mest var ekið á föstudögum, í nýliðnum mánuði, og minnst á sunnudögum. Mest jókst umferð á mánudögum. Nú stefnir í að umferð geti aukist um 3,5% miðað við síðasta ár. Búist er við mestri aukningu um mælisnið á Hafnarfjarðarvegi við Kópavogslæk.