Umferðarmet á höfuðborgarsvæðinu í janúar

Mikil aukning varð í umferð á höfuðborgarsvæðinu í janúar en rétt einsog á Hringveginum var umferðarmetið frá árinu 2019 slegið en umferðin var um prósenti meiri en þá. Umferðin var síðan heilum 12 prósentum meiri í nýliðnum janúar en í sama mánuði fyrir ári síðan að því er fram kemur í upplýsingum frá Vegagerðinni.

Líkt og á Hringvegi varð mjög mikil aukning í umferð í nýliðnum janúar á höfuðborgarsvæðinu, fyrir þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar, borið saman við sama mánuð á síðasta ári.  Umferðin reyndist vera 12,1% meiri en á síðasta ári, sem er svipuð aukning og varð á Hringvegi, og 1,0% meiri en fyrra met á höfuðborgarsvæði, sem sett var árið 2019.

Mest jókst umferðin um mælisnið á Hafnarfjarðarvegi eða um 15,0% en minnst um mælisnið ofan Ártúnsbrekku eða um 10,2%. Umferðin reyndist hafa aukist mjög mikið alla vikudaga nema á mánudögum, en þar varð ,,aðeins“ 2,6% aukning. Mest jókst umferð á laugardögum eða um 25,3%. Mest var ekið á föstudögum, í nýliðnum janúar, og minnst á sunnudögum.

Met einnig á Hringveginum

Umferðin í janúar 2023 reyndist sú mesta sem mælst hefur í janúarmánuði. Umferðin jókst töluvert mikið eða um 12,6 prósent miðað við janúar 2022. Fyrra met var sett í janúar 2019 en núna var umferðin ríflega tveimur prósentum meiri en þá. Líklegt verður að telja að mikil vetrarferðamennska skýri aukninguna að einhverju leyti því veðrið var ekki alltaf upp á sitt besta í nýliðnum janúar.

Fyrir lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringvegi þennan fyrsta mánuð ársins, reyndist umferðin sem sé sú mesta sem mælst hefur frá upphafi mælinga í janúar.  Eða 12,6% meiri en á síðasta ári og 2,1% meiri en fyrra metið.

Mest jókst umferðin um mælisnið á Suðurlandi eða um 18,2% en minnst á Austurlandi eða um 2,3%.