Umferðaröryggi bætt með göngu- og hjólabrú yfir Sæbraut

Gerð verður tímabundin göngu- og hjólabrú yfir Sæbraut, sem mun bæta umferðaröryggi verulega, ekki síst fyrir skólabörn í Vogabyggð. Brúin verður
yfirbyggð, með lyftu og tröppum og verður áhersla á jákvæða upplifun vegfarenda og
að innra rými verði aðlaðandi.

Endanlegt útlit hefur ekki verið ákveðið en í skoðun er að nota litað plexígler í yfirbyggingunni til að ýta undir skemmtilega upplifun. Einnig verður góð lýsing í og við brúna. Tölvugerð mynd af því hvernig brúin gæti litið út er eins og og kemur fram á myndinni.

Núverandi aðstæður við Sæbraut kalla á trygga tengingu yfir götuna sem fyrst og því verður ráðist í tímabundnar aðgerðir á þessum stað. Framtíðarlausnin er að Sæbraut verði sett í stokk eins og stendur í Samgöngusáttmálanum. Brúin tengist Snekkjuvogi/Barðavogi í vestri og Tranavogi/Dugguvogi í austri.

Brúin verður færanleg

Tímabundin göngu- og hjólabrú, þar til stokkur er tilbúinn, er því mikilvægur þáttur til að tryggja umferðaröryggi óvarinna vegfarenda milli hinnar nýju Vogabyggðar og Vogahverfis. Þetta á við áður en framkvæmdir stokks byrja og á meðan á framkvæmdum stendur. Brúin verður þannig gerð úr garði að hægt verður að færa hana á meðan á framkvæmdatímanum stendur.

Góð reynsla af sambærilegum brúm

Reykjavíkurborg og Vegagerðin hófu undirbúning formlega haustið 2022. Skoðaðir voru möguleikar á því að gera brú annars vegar með römpum og hins vegar með lyftum. Mikill hæðarmunur er þarna svo lyftubrú er betri kostur því rampar yrðu langir. Góð reynsla hefur verið af sambærilegum brúm til dæmis í Noregi þar sem þær eru talsvert notaðar, til dæmis í neyðartilfellum.