Umferðarráð hvetur stjórnvöld til að spara ekki í umferðaröryggismálum

http://www.fib.is/myndir/Klessuverk.jpg

„Vegna breyttra aðstæðna í efnahagsmálum hér á landi má búast við að fólk ferðist meira innanlands en utan á komandi sumri. Fyrir bragðið má búast við aukinni bílaumferð sem hefur mögulega hættu í för með sér,“ segir í nýrri ályktun Umferðarráðs. Síðan segir í ályktun ráðsins:

„Á tveimur undanförnum árum hefur átt sér stað jákvæð þróun varðandi fækkun banaslysa í umferðinni, en aldrei hafa þau orðið færri tvö ár í röð á síðustu 40 árum. Fjöldi látinna í umferð á hverja 100.000 íbúa á þessu tímabili er hvergi lægri í Evrópu en á Íslandi. Vonandi tekst að halda áfram á sömu braut á þessu ári með aukinni vitund fólks um mikilvægi ýmissa öryggisþátta í akstri. Engu að síður hefur alvarlega slösuðum fjölgað síðustu árin.

Helstu ástæður eru of mikill umferðarhraði, ölvunarakstur og vanræksla á notkun bílbelta. Til þess að sporna við þeirri þróun varar Umferðarráð við niðurskurði fjármagns til Umferðarstofu en afleiðingin af því er m.a. skert umferðarfræðsla til barna og umferðaráróður í fjölmiðlum. Þá hvetur Umferðarráð stjórnvöld til þess að auka umferðarlöggæslu á vegum landsins í sumar vegna aukinnar umferðar. Einnig hvetur Umferðarráð alla þá sem leið eiga um vegi landsins að leggja sitt að mörkum svo takast megi að fækka alvarlegum umferðarslysum.“