Umferðarslysum hefur fækkað um 30% á Suðurlandi

Umferðarslysum á Suðurlandi hefur fækkað um þrjátíu prósent síðan kórónuveirufaraldurinn braust út. Lögreglan hefur haft meira svigrúm til þess að sinna hvers konar sóttvarnaeftirliti í staðinn. Þetta kom fram í fréttatíma á ríkissjónvarpinu.

„Við sjáum það auðvitað að straumur ferðamanna er töluvert mikið minni en hann hefur verið síðustu ár þannig að umferðin er miklu minni. Og við sjáum það í þessari fækkun óhappa og umferðarlagabrota að umferðin er að minnka,“ segir Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, í viðtalinu á RÚV.

Fram kom að á fyrstu tíu mánuðum ársins 2019 urðu 555 óhöpp í umferðinni á Suðurlandi, þar af 113 þar sem slys urðu á fólki. Á fyrstu tíu mánuðum þessa árs hafa orðið 392 óhöpp, þar af 78 þar sem fólk slasaðist. Slysum hefur því fækkað um 30%.  Þá hefur umferðalagabrotum einnig fækkað mikið.

„Þeim fækkar líka að sama skapi,“ segir Sveinn Kristján. „Og það er þessi sama skýring, að ferðamaðurinn er minna á ferðinni. En Íslendingurinn er samt drjúgur að safna inn brotum þannig að fólk má alveg hafa það í huga að fara varlega.“