Umferðin í september mun minni en fyrir ári

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í september dróst saman um 4,4 prósent frá sama mánuði í fyrra. Þótt umferðin sé meiri en í ágúst er þetta mikill samdráttur í mánuðinum. Frá áramótum nemur samdrátturinn ríflega átta prósentum og það stefnir í algeran metsamdrátt í umferðinni í ár eða meira en þrisvar sinnum meiri samdrátt en áður hefur mælst. Þetta kemur fram í tölum frá Vegagerðinni.

Umferðin, um þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu, í nýliðnum september reyndist 4,4% minni en í sama mánuði á síðasta ári en engu að síður var umferðin 4,9% meiri en í nýliðnum ágúst.  Þetta er met samdráttur milli september mánaða því mesti samdráttur, sem áður hafði mælst milli september mánaða, var 3,6% milli áranna 2008 og 2009.

Þá kemur fram að leita þarf aftur til ársins 2016 til að finna minni umferð í september.  Mest dróst umferðin saman á Hafnarfjarðarvegi eða um 8,7% en lítilsháttar aukning varð í mælisniði á Reykjanesbraut eða 0,1% aukning.

Nú er útlit fyrir að apríl mánuður í ár verði langumferðarminnsti mánuður ársins og nýliðinn júní sá umferðarmesti.  Munur á umferð milli þessara tveggja mánaða eru heil 47%.

Nú hefur umferðin dregist saman um 8,2%, frá áramótum, miðað við sama tímabil á síðasta ári.  Þetta er met samdráttur miðað við árstíma og næstum þrisvar sinnum meiri en áður hefur mælst, en það var milli áranna 2008 og 2009.

Umferð dróst saman í öllum vikudögum septembermánaðar en mest á sunnudögum eða um 15,2% en minnst á miðvikudögum eða um 2,6%. Bíllausa daginn 20. september bar upp á sunnudag og reyndist umferðin þann dag vera 10,7% minni en á meðalsunnudegi í september.