Umferðin um Vaðlaheiðargöng í júní töluvert undir væntingum

Umferðin um Vaðlaheiðargöng í júní var töluvert undir væntingum og eru tekjur það sem af er sumrinu um 35% minni en áætlanir gerðu ráð fyrir. Í áætlunum var gert ráð fyrir að um 90% af umferðinni myndu nota göngin en staðreyndin er sú að hlutfallið er um 70%.

Í samtali við FÍB sagði Valgeir Bergmann, framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga, að tekjur sumarsins séu um 35-40% minni en áætlanir gerðu ráð fyrir. Ýmsar ástæður kunna að vera fyrir þessu og bendir Valgeir á að enn standi yfir framkvæmdir og verið sé að ganga frá nokkrum hlutum. Eins hafi fleiri greitt fyrirfram fyrir ferðir og fengið góðan afslátt.

,,Það stendur yfir frágangsvinna og eins er verið að vinna að betri merkingum. Það mátti allt eins búast við að fleiri kysu að fara um Víkurskarðið yfir hásumarið. Reyndin er sú að rútur kjósa að fara um skarðið og spari sér þannig greiðslu í göngin. Við munum þegar líður á sumarið greina þetta betur og finna út af hverju fleiri ákveða að aka um Víkurskarðið en við bjuggumst við. Það er engin ein skýring á þessu og miklu heldur margþættar ástæður. Við erum að lenda ítrekað í því að ferðamenn stöðva fyrir utan göngin vegna þess að þau passa ekki inn kort sem þeir eru að keyra eftir. Við vonum að vegamerkingar og bætt aðkoma að þeim munu auka umferð um göngin,“ sagði Valgeir.

Valgeir sagðist vona að eftir sem fram líða stundir muni fleiri nýta sér göngin. Þau stytta leiðina og auka öryggið.

Þessi samdráttur á áætluðum tekjum Vaðlaheiðarganga er þrátt fyrir það að Vegagerðin hafi ekki enn gengið frá tilhlýðilegum merkingum til að upplýsa vegfarendur hvaða leiðir eru í boði. FÍB hefur fengið sterk viðbrögð frá vegfarendum sem telja að þennan skort á merkingum aðför að vegfarendum. Fólk sem er ekki staðkunnugt telur að eina leiðin frá Akureyri til austurs, eða þá sem stefna á Akureyri úr Þingeyjarsýslum og þaðan austur um, sé vegurinn um Vaðlaheiðargöng.