Uppbygging samgangna á höfuðborgarsvæðinu

Viðræðuhópur um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu hefur skilað niðurstöðum sínum til ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Markmiðið með starfi hópsins var að leggja grunn að samkomulagi um fjármagnaða áætlun um fjárfestingar í stofnvegum og kerfi almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu eins og fram kemur á vef samgönguráðuneytisins.

 Hópurinn skilaði sameiginlegri niðurstöðu um forgangsröðun framkvæmda við uppbyggingu stofnvega, Borgarlínu og stofnstígakerfis hjólreiða á næstu fimmtán árum og verður niðurstaðan kynnt umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis og lagt til að tekið verði tillit til hennar við mótun samgönguáætlunar sem nú liggur fyrir Alþingi.

Á fundinum sammæltust fulltrúar ríkis og sveitarfélaga um að hefja viðræður um frekari útfærslu þeirra tillagna sem fram koma í skýrslunni m.a. varðandi fjármögnun uppbyggingar innviða samgangna. Lagt verður af stað í þær viðræður með það að markmiði að þeim ljúki næsta vor.
 
Á vef samgönguráðuneytisins segir að niðurstöður viðræðuhópsins verða gerðar opinberar í næstu viku að lokinni umfjöllun í ríkisstjórn og samhliða umfjöllun í bæjarráðum og borgarráði.

Haft er eftir Sigurði Inga Jóhannssyni, samgönguráðherra, í Morgunblaðinu að starfshópur um nýja fjármögnun og breytta gjaldtöku í vegakerfinu gæti líka verið að skila af sér ákveðnum hugmyndum sem munu þá nýtast í vinnunni í umhverfis- og samgöngunefnd. Hann segir aðspurður m.a. horft til þess að nýta slíka gjaldtöku við uppbyggingu þjóðvega frá höfuðborgarsvæðinu.

FÍB hefur ítrekað mótmælt hugmyndum um nýja bílaskatta í formi vegtolla á liðnum árum. FÍB hefur margsinnis bent á að þjóðvegakerfi landsins sé í mjög slæmu ástandi eftir áratugalangan viðhaldsskort. Það er ólíðandi að ráðamenn gangi á bak orða sinna og leggi til stóraukna skattheimtu til þess eins að mæta því að verja svipuðu hlutfalli þjóðartekna til vegabóta líkt og var á árunum fyrir hrun.