Uppsetningu á kantlýsingu lokið í Hvalfjarðargöngum

Uppsetningu á kantlýsingu í Hvalfjarðargöngum er lokið og verður gerð loka úttekt á þeim í næstu viku. Kantljós eru tákn nýrra tíma og er að finna í flestum nýjum jarðgöngum. Orkuvirki sá um uppsetningu ljósanna sem eru með 25 metra millibili í göngunum.

LED ljósin hafa gefið góða raun í öðrum göngum og koma í stað vegstika. Þetta sparar bæði tíma og fyrirhöfn því þrífa þarf vegstikur mánaðarlega með sérstökum vélum í göngunum. Ljósin bæta einnig öryggi og gagnast líka sem rýmingarlýsing ef reykur kemur í göngin.

Hvalfjarðargöngin verða þvegin aðfaranótt föstudagsins 23. október og mun þeirri vinnu ljúka fyrir klukkan 7 um morguninn.

Uppsetningu á kantlýsingu lokið í Hvalfjarðargöngum