Uppsöfnuð viðhaldsþörf metin 372 milljarðar króna

Það er ekki aðeins nauðsynlegt að ráðast í framkvæmdir heldur er rétti tíminn til þess núna. Íslenskt hagkerfi hefur kólnað eftir mikinn vöxt undanfarinna ára. Launþegum í mannvirkjagerð hefur fækkað í fyrsta sinn í mörg ár. Þetta kom fram í máli Sigurðar Hannessonar, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, á útboðþingi samtakanna.

Sigurður sagði ennfremur að með fjárfestingum er byggt undir hagvöxt framtíðar og því er rétt við þessar aðstæður að auka opinberar fjárfestingar, bæði vegna þess að það er skynsamlegt í efnahagslegu tilliti og verkefnin eru sannarlega næg eins og við þekkjum.

„Haustið 2017 gáfu Samtök iðnaðarins í samstarfi við Félag ráðgjafarverkfræðinga út skýrslu um ástand og framtíðarhorfur innviða á Íslandi. Skýrslan hefur nýst vel en hún var fyrsta heildstæða samantektin um málefnið. Niðurstöðurnar komu ef til vill ekki á óvart með hliðsjón af því að innviðir landsins voru fjársveltir um árabil og skuldum þannig velt yfir á framtíðina. Uppsöfnuð viðhaldsþörf var metin 372 milljarðar króna, mest í vegakerfinu og flutningskerfi raforku. Þetta er fyrir utan nýframkvæmdir. Sem betur fer hafa stjórnvöld tekið við sér og forgangsraðað í þágu innviðauppbyggingar. Meira þarf til," sagði Sigurður Hannesson.